Hagnýt forrit
Forrit og tæki sem hentugt er að nota til náms og kennslu
Weebly
Weebly er heimasíða þar sem hægt er að búa til persónulegar heimasíður. Gott til miðlunar upplýsinga og einfalt að búa til flotta síðu á stuttum tíma. Hægt að draga hluti til á síðunni sem auðveldar innsetningu og skipulag á efni....
Slideshare
Slideshare er svæði þar sem hægt er að deila glærum og einnig er hægt að finna mikið safn af upplýsingum þar. Mjög margir aðilar deila sínum glærum þar og hægt er að nálgast þær til að nota. Slóð: http://www.slideshare.net/
Trello
Trello er skipulagstæki, korktaflan og gulu miðarnir. Gott að nota til að skipuleggja sig og jafnvel til hópavinnu og verkefnavinnu. Slóð: https://trello.com/
Soundation
Soundation er vefsíða þar sem hægt er að vinna hljóðskrár á netinu. Það er mikið safn af hljóðskrám á síðunni en til að vinna sínar eign hljóðskrár þarf að kaupa aðgang. Slóð: http://soundation.com/
Wikispaces
Wikispaces er sérhönnuð síða fyrir menntastofnanir til að stofna wikisíður með nemendum. Hægt er að stofna samfélag um wikisíður og nota t.d. í hópavinnu. Athugið að einnig er hægt að setja upp wiki síður í Moodle....
Youtube
Youtube er myndbandaveita þar sem hægt er að geyma myndbönd og einnig er möguleiki á að vinna þau þar með einföldum hætti Slóð: https://www.youtube.com/ Myndbandavinnsla á Youtube: https://www.youtube.com/editor
Socrative
Á vefsíðunni Socrative er hægt að gera t.d. mjög fljótlega nafnlausar kannanir. Þar er líka sniðugt að nota "exit ticket" þar sem nemendur mega fara ef þeir svara þremur spurningum um hversu vel þeir skildu efni dagsins. Sniðugt? Aðrir möguleikar: kannanir og keppnir...
WordPress.com
Wordpress.com er heimasíða þar sem hægt er að halda úti bloggi, einfalt og skemmtilegt kerfi og mikið til af útlitshugmyndum. Slóð: https://wordpress.com/
Padlet
Vefsíða sem er auður veggur þar sem nemendur geta sett inn eins konar post it miða. Gott til að safna hugmyndum og setja inn hugtök ofl. Slóð: https://padlet.com/
Puzzlemaker
Á Discovery Education er tæki sem nefnist Puzzlemaker þar sem hægt er að búa til púsl og krossgátur. Slóð: http://www.discoveryeducation.com
Hafðu samband
Til að fá aðstoð hjá kerfisstjóra er best að senda beiðni í tölvupósti, einnig er hægt að hafa samband í gegnum Teams eða ef mikið liggur við í GSM síma.